Skip to content
Forsíða » Fréttir » Hvesta 3 – Framkvæmdir hafnar

Hvesta 3 – Framkvæmdir hafnar

Orkuver ehf hefur tekið að sér að byggja Hvestuveitu 3, fyrir Jón og Höllu í Fremri Hvestu í Arnarfirði í samstarfi við þau.

Fyrir eiga þau og reka Hvestuveitu 1 og 2.

Framkvæmdir við stíflumannvirki hófust þann 26 júní og voru undirstöður undir inntaksþró steyptar tveimur dögum síðar og inntaksþróin sjálf var síðan steypt viku síðar. 

Hafist verður handa við að reisa sjálfa stífluna næstkomandi mánudag.